tag:blogger.com,1999:blog-19672234351034197342024-02-20T08:19:18.771-08:00flugfélögUnknownnoreply@blogger.comBlogger1125tag:blogger.com,1999:blog-1967223435103419734.post-76819176237919662462007-05-31T17:12:00.001-07:002007-06-09T18:18:27.996-07:00UPPLÝSINGAR UM FLUGFÉLÖGFlugleiðir - nokkurn veginn augljóst að við notum það á leið frá Íslandi.

Malev - flugfélag Ungverjalands. Það er notað þegar við fljúgum til Damaskus frá Kaupmannahöfn. Einnig flugum við með MALEV þegar farið var til Egyptalands.

Gæti verið að ég breytti í næstu Sýrlandsferð þar sem mér finnst þjónustu MALEVS hafa hrakað og verð hefur haldist þó óbreytt. Sjáum til með það.

Royal Jordanian- flugfélag Jórdaníu. Þetta flugfélag frá Frankfurt til Sanaa í Jemen/Jórdaníuferðum. Samningur hefur einnig tekist um að það muni fljúga Íslendingum til Múskat í Óman í febrúar n.k. Það er óhætt að segja að þetta sé vinsælasta flugfélagið hjá Íslendingum, þægilegt bil milli sæta, þjónusta fín og maturinn langbestur

British Airways var notað þegar við flugum frá London til Teheran og ég reikna með að við höldum okkur við það. Verðlag þokkalegt og þjónusta ágæt.
Í síðustu tveimur ferðum höfum við notað hollenska flugfélagið KLM og það hefur mælst ljómandi vel fyrir.

Gulf Air verður notað í Ómanferðinni í haust. Gulf Air er gott flugfélag og þjónusta hefur alltaf verið þar til hins mesta sóma.Unknownnoreply@blogger.com0